Öryggisatriði

Blaðsíða 1 af 2

 

 

 

 

Til að forðast skemmdir á Nikon-vörunni þinni og meiðsl á sjálfum þér eða öðrum skaltu lesa eftirfarandi varúðarráðstafanir í heild sinni áður en þú notar þetta tæki. Geymdu þessar öryggisleiðbeiningar þar sem allir þeir sem nota vöruna munu lesa þær.

Ekki taka myndavélina í sundur: Ef hlutir inni í vörunni eru snertir getur það leitt til meiðsla. Komi til bilunar, ætti varan aðeins að vera löguð af viðurkenndum tæknimanni. Aftengdu búnaðinn og farðu með hann til þjónustuaðila Nikon, ef varan skyldi opnast vegna falls eða annarra slysa.

Halda skal tækinu þurru: Ekki dýfa í vatn, láta tækið komast í snertingu við vatn eða meðhöndla með blautum höndum. Sé þess ekki gætt getur það valdið íkveikju eða raflosti.

Ekki nota nærri eldfimum lofttegundum: Ekki nota rafbúnað nálægt eldfimum lofttegundum þar sem það getur valdið sprengingu eða íkveikju.

Geymist þar sem börn ná ekki til: Ef ekki er farið eftir þessum varúðarráðstöfunum getur það valdið meiðslum.

Biðjið um leyfi áður en myndavélin er notuð í flugvélum eða á læknastofu: Þessi

Is

búnaður gefur frá sér útvarpsbylgjur sem geta truflað siglinga- eða

 

læknisbúnað.

Haldið frá miklum hita: Ekki skilja búnaðinn eftir á svæðum þar sem mjög hátt hitastig er, eins og í lokuðu farartæki á heitum degi. Sé þessum varúðarráðstöfunum ekki fylgt, geta rafrásir og ytra byrði myndavélarinnar skemmst og þannig valdið eldhættu.

2

Page 382
Image 382
Nikon GP-1 manual Öryggisatriði, Blaðsíða 1 af