Nikon MB-D12 manual Setja rafhlöður í, EP-5B rafmagnstengi

Models: MB-D12

1 244
Download 244 pages 1.36 Kb
Page 220
Image 220

Setja rafhlöður í

Hægt er að nota MB-D12 með einni EN-EL15 eða EN-EL18 Li-ion hleðslurafhlöðu eða með átta AA rafhlöður. BL-5 lok á rafhlöðuhólfi (fáanlegt sér) þarf þegar EN-EL18 rafhlaða er notuð.

Tryggðu að slökkt sé á myndavélinni áður en rafhlöðurnar eru settar í og að stýrilás MB-D12 sé í L stöðu.

1Snúðu MB-D12 krækjunni á rafhlöðuhólfi nu íog fj arlægðu rafhlöðuhaldarann (Mynd E).

2Gerðu rafhlöðurnar tilbúnar eins og lýst er að neðan.

EN-EL15: Para skörðin á rafhlöðunni að vörpuninni á MS-D12EN haldaranum, settu rafhlöðuna í með örina (▲) á rafhlöðunni að raftengi rafhlöðuhaldarans (Mynd F- q). Ýttu rafhlöðunni létt niður á við og renndu henni í átt að örinni þangað til raftengin smella í (Mynd F- w).

EN-EL18: Ef rafhlöðusmellarinn á auka BL-5 loki á rafhlöðuhólfi nu er staðsett þannig að örin Y sé sýnileg, renndu rafhlöðusmellaranum yfi r örina (Mynd G- q). Settu tvö útskotin á rafhlöðunni inn í passandi raufar á BL-5 (Mynd G- w) og staðfestu að rafhlöðusmellarinn hefur runnið til hliðar til að sýna örina.

AA rafhlöður: Settu átta AA rafhlöður í MS-D12 rafhlöðuhólfi ð eins og sýnt er í mynd H, gakktu úr skugga um að rafhlöðurnar snúi rétt.

Is

3Settu rafhlöðuhaldarann í MB-D12 og kræktu lokinu á rafhlöðuhólfi nu (Mynd I). Tryggðu að haldarinn sé alveg settur í áður en krækjunni er snúið.

4Kveiktu á myndavélinni og athugaðu hleðslustöðu rafhlöðunnar í stjórnborðinu eða leitaranum. Ef það kviknar ekki á myndavélinni, athugaðu hvort rafhlaðan sé sett rétt í.

EP-5B rafmagnstengi

Þegar EP-5B rafmagnstengið er notað, settu það í MS-D12EN haldarann með örina (▲) á tenginu að raftengi rafhlöðunnar. Ýttu tenginu létt niður á við og renndu því í átt að örinni þangað til raftengin smella í (Mynd J- q). Opnaðu haldarahlíf yfi r rafmagnstengið og settu EP-5B rafmagnssnúruna í gegn um opið (Mynd J- w).

6

Page 220
Image 220
Nikon MB-D12 manual Setja rafhlöður í, EP-5B rafmagnstengi