KitchenAid 5KTT890 Notkun á Artisan brauðrist, Vidvörun, Áður en brauðristin er tekin í notkun

Models: 5KTT890

1 146
Download 146 pages 30.68 Kb
Page 128
Image 128
Notkun á Artisan™ brauðrist

Notkun á Artisan™ brauðrist

Áður en brauðristin er tekin í notkun:

Skoðið ofan í raufarnar og fjarlægið umbúðir eða annað, sem kann að hafa farið niður í þær.

Fyrst þegar brauðristin er notuð kann hún að gefa frá sér skarpa lykt eða lítils háttar reyk. þetta er eðlilegt. Bæði lyktin og reykurinn er meinlaus og hverfur fljótlega.

Tvöföld stilling á 5KTT890:

4-sneiða tækið 5KTT890 er með sérstaka stillingu fyrir hvort raufapar og getur þannig uppfyllt mismunandi kröfur og hægt er að rista mismunandi brauðtegundir samtímis. Farið eins að hvort raufaparið sem þið notið.

Notkun:

Áður en brauðristin er tekin í notkun:VIDVÖRUN

Hætta á raflosti

Ekki má fjarlægja jarðtengingu klóarinnar.

Notið ekki millistykki.

Notið ekki framlengingarsnúru.

Ef þessum leiðbeiningum er ekki fylgt getur það valdið dauða, eldsvoða eða raflosti.

1.Styttið snúruna ef með þar með því að vefja hana undir tækið.

Gerð 5KTT890

4-sneiða brauðrist

2.Stingið klónni í samband í jarðtengda innstungu. Hljóðmerki heyrist þegar tækið er komið í samband.

3.Stingið brauðsneið eða öðru sem á að rista í raufarnar. Ef aðeins á að rista 1 eða 2 sneiðar skiptir engu mála hvaða raufar eru notaðar.

4.Stillið á hversu mikið á að rista; réttsælis því meira sem á að rista brauðið, rangsælis því minna sem á að rista það. Stillingarnar 1-3 eru fyrir lítið ristað, 4-6 fyrir meðalristað og 7-9 fyrir mikið ristað.

Íslenska

Gerð 5KTT780

2-sneiða brauðrist

6

Page 128
Image 128
KitchenAid Notkun á Artisan brauðrist, Vidvörun, Áður en brauðristin er tekin í notkun, Tvöföld stilling á 5KTT890