Íslenska
9
Matvinnsluvélin undirbúin fyrir notkun
2. Látið diskinn falla yfir málmpinnann
á stönginni þannig að hliðin með
blaðinu snúi upp. Ofan á diskinum
er hnúður og raufar neðan á til
að auðveldara sé að stilla hann af.
Snúið svo diskinum þar til hann
læsist alveg ofan á pinnann.
Samsetning lítillar skálar
1. Setjið litlu skálina innan í
vinnsluskálina, yfir snúningsásinn.
Snúið litlu skálinni þar til hún fellur í
skorður. Þegar litla skálin er rétt fest
er ekki hægt að hreyfa hana innan í
vinnsluskálinni.
2. Látið litla blaðið á stöngina. Það
getur þurft að snúa blaðinu þar til
það fellur í réttar skorður.
Á sama hátt má setja litlu skálina
innan í kokkaskálina.
3. Til að fjarlægja litlu skálina eftir
vinnslu skal lyfta henni með því að
nota gripin tvö sem eru við brún
skálarinnar.
Samsetning kokkaskálar
Setjið kokkaskálina innan í
vinnsluskálina, yfir snúningsásinn.
Snúið kokkaskálinni þar til hún fellur
í skorður. Þegar kokkaskálin er rétt
fest er ekki hægt að hreyfa hana
innan í vinnsluskálinni. Kokkaskálina
er aðeins hægt að nota með sneið-
og rifdiskunum – ekki er hægt að
nota fjölnota blaðið. Til að fjarlægja
kokkaskálina eftir vinnslu skal lyfta henni
með því að nota gripin tvö sem eru við
brún skálarinnar.
Framhald á næstu síðu