Vita-Mix 101807 Umhirða & Hreinsun, Samhæfni Könnu, Undirstaða mótors/stjórnborð, Kanna, Vélar

Models: 101807

1 96
Download 96 pages 7.62 Kb
Page 29
Image 29

UMHIRÐA & HREINSUN

Undirstaða mótors/stjórnborð

1.Taktu rafmagnssnúruna úr sambandi.

2.Þvoðu ytra yfirborðið með rökum, mjúkum baðmullarklút vættum í mildri lausn af volgu vatni* og hreinsiefni án svarfefna, eða úðahreinsi án svarfefna. ALDREI

KAFFÆRA UNDIRSTÖÐU MÓTORSINS Í VATNI EÐA ÖÐRUM VÖKVA.

3.Fyrir gerðir með rafeindastýringum: Gættu þess að rispa ekki eða skrúbba skjágluggann á stjórnborðinu. Notaðu mjúkan klút til að þurrka stjórnborðssvæðið hreint. Skjágluggasvæðið rispast þegar hreinsisvampur eða beittur hlutur kemst í snertingu við það.

4.Fyrir gerðir með rofum: Hreinsaðu rofana vandlega svo þeir hreyfist frjálslega. Þeir geta orðið klístraðir. Notaðu blautan klút, vættan í vatni* og mildu hreinsiefni, til að hreinsa meðfram brúnum rofaspaðanna þar til þeir virka frjálslega. Hreyfðu rofana fram og aftur nokkrum sinnum til að losa allar þurrar leifar undir rofanum. Ef rofarnir eru skildir eftir klístraðir skemmast þeir eða brenna yfir. Hreinsaðu varlega og sýndu varkárni svo hvorki vatn eða aðrir vökvar komist inn í rofann.

5.Þurrkaðu með mjúkum baðmullarklút.

*Gættu þess að vinda umframvatn úr klútnum eða svampinum þegar hreinsað er í kringum stjórntæki eða einhverja rafmagnshluta.

Lok

Taktu sundur lokið og tappann (aðeins tvískipt lok). Þvoðu í volgu sápuvatni. Skolaðu af undir rennandi vatni og þurrkaðu. Settu aftur saman fyrir notkun.

Kanna

Fyrir hámarkslíftíma könnu skal EKKI þvo hana í uppþvottavél.

1.HREINSUN: Fylltu könnuna að 1/4 af volgu (110°F/43°C) vatni og bættu út í nokkrum dropum af fljótandi þvottaefni fyrir uppþvottavélar.** Settu könnuna aftur á undirstöðu mótors og settu tvískipta lokið vandlega á. Láttu vélina ganga í 30 sekúndur. Tæmdu könnuna. Endurtaktu þetta skref.

2.SKOLUN: Fylltu könnuna að 3/4 af volgu (110°F/43°C) vatni – EKKI setja sápu. Settu könnuna aftur á undirstöðu mótorsins og settu tvískipta lokið vandlega á. Láttu vélina ganga í 30 sekúndur. Tæmdu könnuna.

Klakafata Skammtablöndunarkerfis (PBS)

1.Taktu rafmagnssnúruna úr sambandi.

2.HREINSUN: Tæmdu þann klaka sem eftir er úr fyrir hreinsun. Notaðu ísausu til að fjarlægja eins mikinn klaka og mögulegt er fyrir ofan klakahilluna.

3.Taktu klakahilluna úr og þvoðu hana í hreinsilausn. Skolaðu af undir rennandi vatni og þurrkaðu.

4.Fylltu hreina blandarakönnu með 5 bollum / 1,2 lítrum af hreinsilausn.

5.Með klakarennu, skvettuvörn og klakahillu fjarlægð skaltu hell varlega hreinsilausninni í klakafötuna með hringhreyfingu, eins nálægt og eins hátt uppi á innri hliðinni og mögulegt er, án þess að skvetta lausn á eininguna utanverða. ATHUGASEMD: Hluti af hreinsilausninni rennur út um blaðsvæðið og upp fyrir og á bak við könnuþófann. Þetta er eðlilegt.

6.Settu könnuna samstundis á könnuþófann og settu klakafötulokið aftur ofan á klakafötuna. Ýttu á og haltu hefilhnappinum í 30 sekúndur til að láta hefilinn ganga og dreifa hreinsilausninni meðan hreinsivökvinn er enn í klakafötunni.

7.Slepptu hefilhnappinum og leyfðu hreinsilausninni að renna niður úr klakafötunni.

8.Notaðu mjúkan klút vættan í hreinsilausn og þurrkaðu með hendinni eins mikið af klakafötunni og heflinum og mögulegt er. Auðsýndu varúð þegar þú þurrkar nálægt hefilblaðinu.

9.Endurtaktu skref 4-8 aftur með hreinsilausn.

10.SKOLUN: Endurtaktu skref 4-8 tvisvar með hreinu vatni.

11.SÓTTHREINSUN: Endurtaktu skref 4-8 tvisvar með sótthreinsunarlausn. Ráðlögð sótthreinsunarlausn er 1,5 tesk. / 7,4 ml iðnaðar- eða heimilisklór í 2 qts. / 2,0 lítra vatns.

12.EKKI skola eða þurrka innra borð klakafötunnar eftir sótthreinsun. Leyfðu klakafötunni að þorna af sjálfu sér með lokið af.

13.Taktu lokið af og þvoðu það í hreinsilausn. Skolaðu af undir rennandi vatni og þurrkaðu.

3.Ef einhverjar fastar leifar eru eftir skal fjarlægja hreyfisamstæðu blaðsins og þvo alla hluta könnunar í volgu sápuvatni. Skolaðu og láttu renna af hlutunum. Settu aftur saman fyrir næsta skref. EKKI rennbleyta hreyfisamstæðu blaðsins.

4.SÓTTHREINSUN: Ef allar fastar leifar eru farnar eftir skref 2 eða þegar 3. skrefi er lokið skal fylla könnuna að 3/4 með sótthreinsunarblöndu.*** Settu könnuna aftur

áundirstöðu mótors og settu tvískipta lokið vandlega á. Láttu vélina ganga á MIKLUM hraða í 30 sekúndur. Slökktu á vélinni og leyfðu blöndunni að standa í könnunni í 1-1/2 mínútur í viðbót. Helltu úr klórblöndunni.

5.Settu könnuna aftur á undirstöðu mótorsins og láttu vélina ganga tóma í 5 sekúndur í viðbót. EKKI skola eftir sótthreinsun. Leyfðu könnunni að þorna sjálfri.

**Til að lengja líftíma könnu mæla Vita-Mix með að notaðar séu sápur með lágu Ph-gildi. Ekki er mælt með þvotti í uppþvottavél.

***Ráðlögð sótthreinsunarlausn: 1,5 tesk. / 7,4 ml iðnaðar- eða heimilisklór í 2 qt. / 2,0 lítra vatn.

MIKILVÆG MINNISATRIÐI!

HREINSUNARVÖRUR: EKKI nota hreinsiefni með svarfefni eða óblandaðan klór við hreinsun. EKKI nota nein hreinsiefni sem innihalda kvarternær sótthreinsunarefni eða pólýkarbónat-þætti. EKKI neinar af eftirfarandi hreinsunarvörum: þvottaefni fyrir uppþvottavélar, ofnahreinsa, stálull eða aðra þófa með svarfefni.

BLAÐ SAMSTÆÐA: EKKI rennbleyta hreyfisamstæðu blaðsins.

SAMHÆFNI KÖNNU

Kanna Vélar

64 oz. / 2,0 lítr. PBS, Touch and Go Blending Station, Blending Station Advance, BarBoss Advance, BarBoss, Drink Machine Advance, Drink Machine Two-Step, Drink Machine Two-Speed,Vita-Prep 3,Vita-Prep,Vita-Pro

48 oz. / 1,4 lítr. Touch and Go Blending Station, Blending Station Advance, BarBoss Advance, BarBoss, Drink Machine Advance, Drink Machine Two-Step, Drink Machine Two-Speed,Vita-Prep 3,Vita-Prep,Vita-Pro

Kanna

Vélar

32 oz. / 0,9 lítr.

BarBoss Advance, BarBoss, Drink Machine Advance, Drink

 

Machine Two-Step, Drink Machine Two-Speed, Vita-Prep 3,

 

Vita-Prep, Vita-Pro

32 oz. / 0,9 lítr. XP

T&G 2 Blending Station, BarBoss Advance, Drink Machine

 

Advance

48 oz. / 1,4 lítr. XP

PBS Advance, Blending Station Advance

29

Page 29
Image 29
Vita-Mix 101807 Umhirða & Hreinsun, Samhæfni Könnu, Undirstaða mótors/stjórnborð, Kanna, Mikilvæg Minnisatriði, Vélar